Gleðileg jól!Sesselja Kristinsdóttir
Neih, sko mig, ég bara mundi þetta blessaða lykilorð. Ætlaði sko fyrir langa löngu að byrja að blogga en bara gat ekki fyrir mitt litla líf munað þetta blessaða lykilorð. Var einmitt að skrifa komment á míns eigins síðu fyrir svona eins og tvem mínútum eða svo um að ég hafi ekki munað það en ákvað samt að reyna og það bara virkaði
. En já, ég nenni nú ekki að fara að telja upp fyrir ykkur það sem á daga mína hefur drifið svona síðasta hálft árið eða svona en svona í stórum dráttum byrjaði ég aftur í mínu æðislega skóla, MS, og er svo bara búin að vera að vinna líka eitthvað á Hrafnistu með og svo bara tók ég próf og það gekk nú svona upp og niður. Náði samt öllu
og er alveg hæst ánægð með það. Svo eru bara komin jólin og meira að segja annar í jólum núna. Það sem að ég fékk í jólagjafir var nú bara mjög fínt. Ég fékk til dæmis iCar eitthvað sem verkar nú samt ekki alveg nógu vel en það hlýtur að koma bara. Svo fékk ég líka myndavél, hálsmen, eyrnalokka, mokka bolla, spöng og margt fleira.
En ætla nú að fara að slíta þessu.
Jólakveðja
Sessa
Tími á eitt blogg eða svo?Sesselja Kristinsdóttir
Jæja, það hefur nú lítið gerst í mínu lífi upp á síðkastið. Ég er nú aðallega bara búin að vera að vinna og svona. Binni er líka kominn heim
. Já, eins og ég segi þá er ég bara búin að vera að vinna mjög mikið. Fékk frí um síðustu helgi sem var mjög gott
. Þá fór ég upp í sumó með mömmu og pabba og slappaði það vel á. Svaf eiginlega allan laugardaginn og las líka pínu og var í náttfötunum til klukkan hálf fimm
. Þá fórum ég og mamma í smá bíltúr og ég fékk að keyra til baka. Á sunnudaginn fórum við svo heim um eitt leitið og ég fékk að keyra heim
. Var ótrúlega stollt af mér að hafa ekki keyrt útaf eða eitthvað
. En núna um helgina þarf ég að vinna
. Hlakka ekkert rosalega til en sem betur fer er ég ekki að fara að vinna með Steinunni og svo er ég líka búin að fá að sofa út í gær, dag og á morgun svo ég verð örugglega vel útkvíld
.Ég held að þetta sé komið gott í bili
(nenni sko ekki að gera meira
hihi
)Jamm og jæja ;)Sesselja Kristinsdóttir
Jahá, þið segið það.Það hefur nú ekkert rosalegt drifið á mína daga síðan ég kom heim. Ég er nú bara mest megnis búin að vera að vinna og svo bara vinna aðeins meira. Það er samt búið að vera allt í lagi síðustu daga því María er búin að vera að vinna með mér á morgunvöktunum og svo á kvöldin er bara búið að vera svo skemmtilegt fólk (skemmtilegt fólk er sem sagt allir sem eru skemmtilegri en Steinunn sem eru flestir
). Ég verð samt að segja ykkur eitt sem einn kall sem er orðinn frekar góður vinur minn sagð. Ég var bara í makindum mínum að gefa fólki að borða og svona. Svo kom þessi gamli vinur minn og settist og ég gekk til hans og spurði hann hvort mætti bjóða honum graut eða súpu og þá sagði hann ,,Mér er alveg sama, þið eruð hvort eð er alltaf að fita mig og ég er orðinn eins og ólétt kona á meðan þið eruð allar svona flatar", og svo hlóum við saman og ég gaf honum graut
.Jahá, þannig var nú það. Kannski finnst ykkur þetta ekkert rosalega fyndið en mér finnst það allavega og það er það eina sem skiptir máli hihi
.Nú fer að styttast í að hann Binni uppáhalds bróðir minn (ég á bara einn sko

) kemur heim. Ég hlakka ekkert smá til og er sko búin að panta að fá að fara upp á flugvöll og taka á móti honum
.En ætla ekki að hafa þetta mikil lengra þannig að þar til næst, hafið það gott

ÍtalíaSesselja Kristinsdóttir
Jæja, þá erum við systurnar komnar heim frá ítalíu. Þar var mikið gert af því að borða, labba og versla. Keypti mér meðal annars buxur, skó, kjól og nokkra boli. Við fórum líka í fyrsta mollið í heiminum, risa stóra Armani búð og allskonar skemmtilegt. Þetta var bara alveg áðisleg ferð.En núna er það bara vinnan sem tekur við og svo fer ég aftur til útlanda í byrjun júlí en þá er ferðinni haldið til Rúmeníu og Ungverjalands með vinkonum mínum.
En ætla ekki að hafa þetta mikið lengra ;)
Góður dagur að kveldi kominnSesselja Kristinsdóttir
Jæja, þá er þessi dagur búinn. Hann er bara búinn að vera mjög fínn
Fór um hádegi með Þórhildi, Hildi og Krissu niður laugarveginn þar sem að ég keypti mér GULAN puma bol, fjóra kamba í hárið og spöng. Síðan fórum við á kaffibrennsluna og fengum okkur að borða. Það var mjög fínt
Svo klukkan átta fórum við nokkur úr hjálparstarfinu út að borða á Ítalíu. Það var mjög gaman
Eftir það fórum svo ég, Hildur, Krissa og Anna í ísbúðina í skeifunni (eða eitthvern staðar þar
) og svo er ég bara hingað komin (þ.e.a.s. heim sko
). Sem sagt þetta var bara einn sá besti dagur sem ég hef átt núna nýlega því ég er bara búin að vera í prófum og eitthvað en núna loksins er ég komin í sumarfrí sem er reyndar ekkert mikið sumarfrí því maður þarf víst að vinna.
En ætla að segja þetta gott í bili
Prófin búinSesselja Kristinsdóttir
Jæja, þá er ég loksins búin að þessum blessuðu prófum. Ahh hvað það er gott
Reyndar þá veit ég núna ekkert hvað ég af mér að gera en það kemur allt saman
Ég ætla allaveg rétt að vona það. Ég er samt að fara í vinnuna á eftir. Er ekkert rosalega að nenna því reyndar en það verður bara að hafa það. Vinna er vinna sem þarf að vinna. Nei, vá þarna er ég alveg farin að bulla
En í gær og í fyrra dag áttu systkini mín afmæli. Systir mín varð 27 ára í gær og bróðir minn 25 ára í fyrra dag. Af því tilefni vil ég óska þeim innilega ril hamingju með það

En ætla ekki að hafa þetta mikið lengra
JaháSesselja Kristinsdóttir
Ég á eiginlega að vera að læra núna en ég bara nenni því ekki. Ákvað því í staðinn að blogga pínu
Veit voða lítið um hvað ég á að blogga. Jú, ég veit reyndar um eitt sem ég get bloggað um. Reyndar bennti Hildur mér eiginlega á að ég gæti sagt ykkur frá því 
Þannig er mál með vexti að í gær var svona vorverkadagur í Ártúnsskóla (gamli skólinn minn sko
). Þess vegna ákváðum við Krissa að það væri voða sniðugt að taka sér smá frí frá lærdómdum (sem var búinn að vera voða lítill hjá mér
) og skella okkur niður í skóg og fá okkur pylsu og horfa á skemmtiatriði og heimsækja alla gömlu kennarana okkar. Við rölltum því niður í skóginn (Krissa náttúrulega á inniskónum eins og venjulega
) en þegar við komum niður eftir og sáum að það var eiginlega ekkert fólk þarna ákváðum við að röllta aðeins lengra niðureftir bara. Á leið okkar þarna niður blasti svo ekki bara við okkur Pizza hut staðurinn á Sprengisandi. Við ákváðum því að fara bara þangað og fá okkur hádegismat.
Svo þegar við vorum í makindum okkar að borða ljúffenga pizzu hringdi hún Hildur í okkur og bauð okkur í pottinn hjá sér. Við þáðum að sjálf sögðu boðið og þegar við vorum búnar að borða fórum við heim sóttum sundfötin okkar og fórum til Hildar.
Þar fórum við í pottinn, fengum pönsur sem mamma hennar Hildar bakaði handa okkur (hún bakar barasta eiginlega alltaf eitthvað handa manni þegar maður kemur þangað
) og vorum solltið mikið í trinia (eða meira svona Krissa, við hludr fengum að horfa á og hjálpa
). Svo var ég ein heima þannig að Krissa kom hingað og við pönntuðum okkur pizzu (í annað sinn þann daginn

), vorum í trivia (surprice, surprice) og svo kom hún Þórhildur til okkar og hún fékk lánað pils hjá mér og svo vorum við bara enn meira í trivia og svo fengum við okkur smá labbitúr uppá videoleigu til að skila dvd. Þannig að þann daginn var lítið um lærdóm hjá okkur Krissu sem er kannski ekki alveg til fyrirmyndar en það verður bara að hafa það

En ég ætla að fara að ljúka þessari langloku og ég vona bara að einhver hafi nennt að lesa hana alla
DönskanSesselja Kristinsdóttir
Jæja, þá er maður búin í dönskunni. Það gekk nú alveg ágætlega skal ég segja ykkur
. Það eina sem gekk ekkert alveg neitt rosalega vel var ritunin en það er bara af því að mér gengur aldrei vel í svona ritunum í prófum. Það er ekki alveg nógu gott samt
en það verðu bara að hafa það
. En að öðru. Kann einhver að setja inn myndir á þessa síðu? Ég er búin að reyna það tvisvar en það er bara ekkert að ganga hjá mér
. Ekki sniðugt það
. Ég ætla bara að hafa þetta stutt blogg í dag. Er að bíða eftir að mamma hringi og komi svo heim svo við getum farið að fara í Kringluna (ekki í fyrst skipti í vikunni hihi
(fór í gær, fyrradag og á mánudaginn og svo fór ég líka á föstudaginn síðasta
þetta er eiginlega orðið annað heimili okkar stalpnanna og svo lík esso hjá mér, Krissu og Ástríði)). Ble, ble
Ný síðaSesselja Kristinsdóttir
Jæja, þá er ég komin með svona bloggar.is síðu
hihi
Mig langaði bara til að prufa en ég lofa ekki að ég verði eitthvað súper dugleg að blogga
Langar bara til að tékka á því. En burt séð frá því þá á að að vera að læra núna fyrir dönskupróf sem er á morgun og mamma mín væri þess vegna ekki ánægð ef hún vissi að ég væri að búa mér til bloggsíðu en ekki að læra en hverju skiptir það svo sem. Hún er bara í vinnunni sinni svo hún mun ekkert vita af því að ég sé bara búin að búa til bloggsíðu þegar hún kemur heim. Hún heldur bara að litla duglega dóttir hennar (hehemm
) sé bara búin að vera að læra alveg á fullu. Og úr einu í annað. Ég er að fara til Ítalíu eftir tvær vikur að heimsækja bróður minn með systur minni en það er bara aukamál því ég er aðalega að fara þangaði til að versla
. Nei, ég segi nú bara svona. Aðalmálið er náttúrulega að fara að heimsækja bróður minn sem ég er ekki búin að sjá síðan 3. janúar 2006 að kvöldi til hihi
.En núna er ég að pæla í að hætta þessu og fara að læra fyrir þetta b*****ns dönskupróf
ekki gaman það 
Þannig að bara bless, bless
